Þjófnaður er helsta tekjulind ISIS Samúel Karl Ólason skrifar 8. október 2015 14:49 ISIS hefur sett á laggirnar skóla í Sýrlandi og Írak. Hryðjuverkasamtökin Íslamskt ríki hafa lengi verið talin vel sett fjárhagslega. Samtökin hafa hagnast vel á sölu olíu og fornminja og á lausnargjaldi vegna gísla. Þá stæra samtökin sig af því á samfélagsmiðlum að hafa byggt upp embættismannakerfi, lögreglu og stóran þjónustugeira. Skjöl sem nýverið litu dagsins ljós gefa þó áður óþekkta mynd af fjármálum ISIS og svo virðist sem að samtökin afli mestra tekna á því að beinlínis ræna það fólk sem býr á yfirráðasvæði þeirra. Skjölin, sem sjá má hér, eru frá héraðinu Deir Ezzor. Það hérað er í austurhluta Sýrland og má þar finna mikið af olíu. Íslamska ríkið hefur stjórnað því svæði frá því í júlí í fyrra. Skjölin ná yfir einn mánuð eða frá 23. desember 2014 til 22. janúar 2015.Helstu tekjurnar af upptöku Á yfirliti yfir tekjur ISIS í héraðinu má sjá að heildartekjur héraðsins á þeim tíma voru rúmlega 8,4 milljónir dala. Sem hlutfall af heildartekjum voru sala á olíu og gasi 27,7 prósent. Tekjur af sölu rafmagns voru 3,9 prósent, skattar 23,7 prósent og svokölluð „upptaka“, e. confiscations, samsvarar heilum 44,7 prósentum af heildartekjum samtakanna. Skjölin voru gerð opinber af Aymenn al-Tamimi, sem starfar fyrir UK Middle East Forum sem hefur verið að vinna við landamæri Sýrlands. Hann segir margar ástæður fyrir því að fé og eignir fólk sé gert upptækt. Þar megi nefna að heimili íbúa sem hafa flúið eru rænd, sektir fyrir brot á lögum ISIS og eða um sé að ræða smyglaðar vörur sem hafa verið gerðar upptækar eins og áfengi og sígarettur. Í samtali við Vice News segir Tamimi til dæmis að ef eigendur fyrirtækja missa af bænum þrisvar sinnum í röð, séu fyrirtæki þeirra gerð upptæk. Þá sé líti út fyrir að vígamenn samtakanna ræni fólk við landamæri héraðsins.Stór hluti útgjalda í hernað Sé litið yfir heildarútgjöld ISIS, rúmar 5,5 milljónir dala, fara 19,8 prósent í rekstur herstöðva og 43,6 prósent í laun vígamanna. Samtals fara 63,4 prósent af útgjöldum ISIS í héraðinu í hernað. Þá fara 2,8 prósent í fjölmiðla, 10,4 prósent í lögreglu, 17,7 prósent í þjónustu og 5,7 prósent í lið sem er titlaður sem neyðarhjálp. Tamimi segir þessi skjöl gefa í skyn að tekjur samtakanna af sölu olíu séu ekki nærri því sem áður hefur verið talið. Fjölmiðlar ytra sögðu frá því í fyrrasumar að samtökin högnuðust um allt að þrjár milljónir dala á dag af sölu olíu. Hagnaður af sölu fornminja er ekki innifalinn í umræddum skjölum. Mið-Austurlönd Mest lesið Meðvirkni í garð Katrínar að tjá sig ekki um hana Innlent „Aldeilis hlessa“ á auknum viðbúnaði vegna mögulegs goss Innlent Tók upp þegar hann nauðgaði kærustu sinni í tvígang Innlent Maðurinn sem kveikti í sjálfum sér látinn Erlent Fluttir á sjúkrahús eftir hópslagsmál í miðborginni Innlent Getur gosið hvenær sem er Innlent Sprengjuhótun í Billund Erlent Að taka afstöðu er einkamál hvers og eins Innlent Þjófunum yfirsást taska með milljónum króna Innlent Fjögur börn meðal smitaðra af kíghósta Innlent Fleiri fréttir Sprengjuhótun í Billund Maðurinn sem kveikti í sjálfum sér látinn Íkveikjan ekki talin hafa beinst að Trump eða réttarhöldunum Kveikti í sér fyrir utan dómshúsið þar sem réttað er yfir Trump Fyrstu loftárásir Ísraela í Íran frá 1979 Fengu aðstoð Demókrata við að koma hernaðaraðstoð úr nefnd Hefur mátt sitja undir svívirðingum um sjálfan sig Segjast hafa skotið niður dýrmæta sprengjuflugvél Handtekinn í tengslum við áform um að ráða Selenskí af dögum Ísraelar gera árás á Íran Kennedy-fjölskyldan lýsir yfir stuðningi við Biden Bandaríkin stöðvuðu fulla aðild Palestínumanna að SÞ Hrunið í gömlu kauphöllinni heldur áfram Afsalta sjó til drykkjar í þurrki í Barcelona Eiginmaður Sturgeon ákærður fyrir fjárdrátt Mega koma til að snæða í Grindavík en aðeins í rútu Johnson í erfiðri stöðu Hafa vitneskju um mögulegan dvalarstað Íslendings sem flýr réttvísina Útsendarar Rússa sakaðir um skipulagningu árása í Þýskalandi Mikill mannskaði eftir sögulegt úrhelli í eyðimörkinni Kjarnorkuknúin drónaþyrla mun leita að lífrænum sameindum á Títan Sendi ösku í allt að þriggja kílómetra hæð Ákærður fyrir að nota slagorð SS-sveitanna á fjöldafundi Stjórnvöld í Katar að endurskoða sáttasemjarahlutverk sitt Réði lífvörð eftir árásina á bandamann Navalnís Borgarstjóri sakaður um brot gegn dóttur sinni Hæsta vindmylla heims á landi reist í Danmörku Þingforsetinn segist ekki ætla að fara fet Ísraelar sagðir búnir að ákveða að svara fyrir sig Boðflennusæfíll hrellir Kanadamenn Sjá meira
Hryðjuverkasamtökin Íslamskt ríki hafa lengi verið talin vel sett fjárhagslega. Samtökin hafa hagnast vel á sölu olíu og fornminja og á lausnargjaldi vegna gísla. Þá stæra samtökin sig af því á samfélagsmiðlum að hafa byggt upp embættismannakerfi, lögreglu og stóran þjónustugeira. Skjöl sem nýverið litu dagsins ljós gefa þó áður óþekkta mynd af fjármálum ISIS og svo virðist sem að samtökin afli mestra tekna á því að beinlínis ræna það fólk sem býr á yfirráðasvæði þeirra. Skjölin, sem sjá má hér, eru frá héraðinu Deir Ezzor. Það hérað er í austurhluta Sýrland og má þar finna mikið af olíu. Íslamska ríkið hefur stjórnað því svæði frá því í júlí í fyrra. Skjölin ná yfir einn mánuð eða frá 23. desember 2014 til 22. janúar 2015.Helstu tekjurnar af upptöku Á yfirliti yfir tekjur ISIS í héraðinu má sjá að heildartekjur héraðsins á þeim tíma voru rúmlega 8,4 milljónir dala. Sem hlutfall af heildartekjum voru sala á olíu og gasi 27,7 prósent. Tekjur af sölu rafmagns voru 3,9 prósent, skattar 23,7 prósent og svokölluð „upptaka“, e. confiscations, samsvarar heilum 44,7 prósentum af heildartekjum samtakanna. Skjölin voru gerð opinber af Aymenn al-Tamimi, sem starfar fyrir UK Middle East Forum sem hefur verið að vinna við landamæri Sýrlands. Hann segir margar ástæður fyrir því að fé og eignir fólk sé gert upptækt. Þar megi nefna að heimili íbúa sem hafa flúið eru rænd, sektir fyrir brot á lögum ISIS og eða um sé að ræða smyglaðar vörur sem hafa verið gerðar upptækar eins og áfengi og sígarettur. Í samtali við Vice News segir Tamimi til dæmis að ef eigendur fyrirtækja missa af bænum þrisvar sinnum í röð, séu fyrirtæki þeirra gerð upptæk. Þá sé líti út fyrir að vígamenn samtakanna ræni fólk við landamæri héraðsins.Stór hluti útgjalda í hernað Sé litið yfir heildarútgjöld ISIS, rúmar 5,5 milljónir dala, fara 19,8 prósent í rekstur herstöðva og 43,6 prósent í laun vígamanna. Samtals fara 63,4 prósent af útgjöldum ISIS í héraðinu í hernað. Þá fara 2,8 prósent í fjölmiðla, 10,4 prósent í lögreglu, 17,7 prósent í þjónustu og 5,7 prósent í lið sem er titlaður sem neyðarhjálp. Tamimi segir þessi skjöl gefa í skyn að tekjur samtakanna af sölu olíu séu ekki nærri því sem áður hefur verið talið. Fjölmiðlar ytra sögðu frá því í fyrrasumar að samtökin högnuðust um allt að þrjár milljónir dala á dag af sölu olíu. Hagnaður af sölu fornminja er ekki innifalinn í umræddum skjölum.
Mið-Austurlönd Mest lesið Meðvirkni í garð Katrínar að tjá sig ekki um hana Innlent „Aldeilis hlessa“ á auknum viðbúnaði vegna mögulegs goss Innlent Tók upp þegar hann nauðgaði kærustu sinni í tvígang Innlent Maðurinn sem kveikti í sjálfum sér látinn Erlent Fluttir á sjúkrahús eftir hópslagsmál í miðborginni Innlent Getur gosið hvenær sem er Innlent Sprengjuhótun í Billund Erlent Að taka afstöðu er einkamál hvers og eins Innlent Þjófunum yfirsást taska með milljónum króna Innlent Fjögur börn meðal smitaðra af kíghósta Innlent Fleiri fréttir Sprengjuhótun í Billund Maðurinn sem kveikti í sjálfum sér látinn Íkveikjan ekki talin hafa beinst að Trump eða réttarhöldunum Kveikti í sér fyrir utan dómshúsið þar sem réttað er yfir Trump Fyrstu loftárásir Ísraela í Íran frá 1979 Fengu aðstoð Demókrata við að koma hernaðaraðstoð úr nefnd Hefur mátt sitja undir svívirðingum um sjálfan sig Segjast hafa skotið niður dýrmæta sprengjuflugvél Handtekinn í tengslum við áform um að ráða Selenskí af dögum Ísraelar gera árás á Íran Kennedy-fjölskyldan lýsir yfir stuðningi við Biden Bandaríkin stöðvuðu fulla aðild Palestínumanna að SÞ Hrunið í gömlu kauphöllinni heldur áfram Afsalta sjó til drykkjar í þurrki í Barcelona Eiginmaður Sturgeon ákærður fyrir fjárdrátt Mega koma til að snæða í Grindavík en aðeins í rútu Johnson í erfiðri stöðu Hafa vitneskju um mögulegan dvalarstað Íslendings sem flýr réttvísina Útsendarar Rússa sakaðir um skipulagningu árása í Þýskalandi Mikill mannskaði eftir sögulegt úrhelli í eyðimörkinni Kjarnorkuknúin drónaþyrla mun leita að lífrænum sameindum á Títan Sendi ösku í allt að þriggja kílómetra hæð Ákærður fyrir að nota slagorð SS-sveitanna á fjöldafundi Stjórnvöld í Katar að endurskoða sáttasemjarahlutverk sitt Réði lífvörð eftir árásina á bandamann Navalnís Borgarstjóri sakaður um brot gegn dóttur sinni Hæsta vindmylla heims á landi reist í Danmörku Þingforsetinn segist ekki ætla að fara fet Ísraelar sagðir búnir að ákveða að svara fyrir sig Boðflennusæfíll hrellir Kanadamenn Sjá meira